Menu
Jóga sútra grunnupplýsingar um sútrurnar og uppruna þeirra

Gummi   10.10.2020

Leiðarvísir hjálpar á jógadýnunni

Leiðarvísir

Þegar maður hefur jógaiðkun þá pælir maður vel í því hvað er góð jógadýna og hvað þarf hún að hafa, en það sem er ekki síður mikilvægt er leiðarvísir, Patanjali Jóga Sútra er leiðarvísir jógaiðkandans.

Dýnan þarf að vera sterk, má ekki slitnaleiðarvísir frá jóga sútra of mikið eða of hratt, stöm svo ég renni ekki og helst eitthvað gott merki svo ég sé nú ekki alveg út úr kú í jógatímanum, helst lífræn og niðurbrjótanleg í náttúru.

En hvað með leiðarvísir og hvert er mikilvægi hans? Hvert er ég að fara með iðkunina. Hver er iðkunin. Er jóga út fyrir dýnuna. Hefur jóga jafnvel einhver tengsl við mitt líf, tengslin við minn eigin huga, við annað fólk, við mitt umhverfi. Og jafnvel er eitthvað umfram þennan huga.

Höfuðleiðarvísirinn er Patanjali Jóga Sútra. Þetta er forn sjálfshjálparbók sem leiðbeinir mér í gegnum ranghala hugans og hans blekkingar. Virkni hugans og hvað hann er í raun og veru. Hvað er það sem er umfram huga og hvert er markmiðið með þessu öllu.

Sútrurnar eru nokkurskonar fyllyrðingar sem hefur verið samanpakkað í zip-skrá. Þar sem hver fullyrðing inniheldur gígantískt magn af upplýsingum í aðeins 5 -20 orðum. Og þessi zip skrá eru nokkurskonar umræða, sem fer alltaf aðeins dýpra í það viðfangsefni sem á við í hverjum kafla.

 

lausnin liggur í 4 köflum

Jóga sútra eru í 4 köflum, þar sem hver kafli hefur ákveðið þema.

  1. Samadhi pada, hvað er hugur og hans virkni. leiðarvísir jóga sútraHvað er jóga. Hvert er samband milli huga og vitundar. Hvernig fæ ég skýrleika innan eigin huga til að sjá hlutinn í sínu rétta eðli.
  2. Sadhana pada, hver eru verkfærin fyrir þann sem hefur óstöðugan huga, og hvernig færi ég mig í áttina að auknum stöðugleika.
  3. Vibhuti pada, þegar hugurinn er stöðugur þá get ég ræktað einstaka eiginleika innra með mér.
  4. Kaivalya pada, markmiðið er frelsi frá uppruna þjáningar. Frelsi innan fortíðar, frelsi innan eigins huga. Og það frelsi sem ég hef þegar ég er ekki takmarkaður af mínum innri drifum.

 

Góð dýna er mikilvægt verkfæri til jóga iðkunar. Enn eins og í öllum leiðangrum þar sem þú veist ekki nákvæmleg hvert þú ert að fara er gott að hafa góðan leiðarvísi til að villast ekki um of á leiðinni. Að hafa góðan leiðarvísir gefur skýrleika hvað ég geri á jógadýnunni og hvert er sambandið milli þess sem ég geri á dýnunni og lífs míns. Jóga sútra er aðal-leiðarvísir jógaiðkandans.

Lifið heil

Gummi

Viltu vita meira, tékkaðu á þessu listin að jóga 1

Gerast Áskrifandi að fréttabréfinu okkar