Menu

Undirstöður Heildrænnar Þróunnar

4 kennslustundir í Undirstöðum Heildrænnar Þróunar,
þar sem unnið er með hrygg og öndun til að móta líkama, orku og huga

Þetta viku langa námskeið á Zoom er fyrir alla sem vilja. Fara frá stirðleika og óstöðugleika í styrk og hreyfanleika. Frá orkuleysi í stöðugri og jafnari orku. Frá dreifðum huga í aukin skýrleika og innsæi.

3

Vinyasa Krama

Hreyfðu líkamann frá miðjunni

Líkaminn verður stirður eða óstöðugur þegar hreyfing tapast úr hryggnum.
Styrkur og hreyfanleiki byggjast upp þegar hreyfing er skipulögð frá miðju líkamans.

Fræði og Framkvæmd Prana

AGNI - STHANA

Endurvektu þindina og jafnaðu öndun

Líkaminn og hugurinn virka ekki eðlilega þegar öndunin er of mikil og þindin er stíf.
Orka og stöðugleiki aukast þegar öndunin minnkar og rými skapast fyrir þindina.

Forsíða vinijóga fyrir líkama öndun huga og anda 1600 x 900

SO - HAM

Hugurinn fær stoð og verður stöðugur

Hugurinn verður óstöðugur þegar líkami og öndun styðja hann ekki.
Skýrleiki og einbeiting myndast þegar öndunin skapar rými og hugurinn fær stoð.

Heildræn Þróun í Haṭha Jóga fer alltaf fram í þessari röð:

Fyrir hvern er námskeiðið?

  • Fyrir þá sem vilja skapa jákvæðan og uppbyggjandi ávana.

  • Fyrir þá sem vilja skýra og markvissa nálgun að eigin þróun.

  • Fyrir þá sem vilja halda heilsu og getu líkamans til lengri tíma — og vinna með orku og huga á markvissan hátt.

  • Fyrir þá sem vilja meiri orku, skýrari huga og stöðugri líkama.

  • Krefst einfaldrar og reglulegrar iðkunar — og vilja til að vinna sjálfstætt á milli tíma og eftir námskeið.

  • Fyrir jógakennara eða jóganema sem vilja dýpka og þroska eigin iðkun og hafa skýra framtíðarstefnu.

Allir þátttakendur námskeiðsins fá!

  • 4 kennslustundir þar sem unnið er markvisst með líkama, öndun og huga

  • einfaldar æfingar til að byggja upp styrk og hreyfanleika frá miðju

  • skýra aðferð til að vinna með öndun og orku líkamans

  • grunn að stöðugri setstöðu og einbeitingu

  • skriflegt efni og upptökur svo þú getur haldið áfram á eigin hraða

Verð

12.500 kr.

Fylltu í eyðurnar, þú munt fá Greiðsluhlekk í SMS

    Algengar spurningar!

    Þarf ég mikinn tíma til iðkunar?
    Það er breytilegt, þú getur iðkað allt frá 15 mínútum upp í klst á dag.

    Aðalatriðið sem skiptir máli er að hún er gerð reglulega, ef þú vilt breytingar þá þarftu að iðka, það er ekki hjá því komist.

    Þetta snýst ekki um magn — heldur að vera regluleg/ur, það er regluleiki iðkunar sem veldur langvarandi breytingu.

    Hvað gerist ef ég missi úr tíma?
    Allir tímar eru teknir upp og þú getur farið yfir tímann þegar þér hentar.

    Þarf ég fyrri reynslu af jóga?
    Nei.

    Námskeiðið byggir á einföldum æfingum sem eru kenndar frá grunni.

    Hvað ef ég finn ekki strax mikinn mun?
    Þetta er ekki skyndilausn.

    Breytingin kemur með reglulegri iðkun — og byggist upp yfir tíma.

    Þar sem margir finna mun nokkuð fljót er í orkustigi og skýrleika, líkamlegur styrkur og hreyfanleiki tekur lengri tíma til að þróa.

    Af hverju þarf ég að iðka sjálfstætt?
    Þróunin gerist ekki aðeins í tímum, heldur yfir tíma, þessvegna er persónuleg iðkun svo mikilvæg, það gerist ekkert án þess að iðka.

    Því meira sem þú iðkar því meiri árangur færðu, að sjálfsögðu allt með skynsemi.

    Námskeiðið gefur þér skýran ramma til aukins sjálfstæðis og þú getur haldið þér í vissri kennslustund eins lengi og þörf krefur, allt á þínum tíma.

    Hvað get ég raunverulega búist við?
    Flestir finna fyrir:

    – meiri stöðugleika og hreyfanleika í líkama
    – jafnari orku yfir daginn og minna orkuhrun
    – skýrari og rólegri huga

    En þetta krefst þess að þú vinnir með iðkunina, ekkert sem er þess virði að þróa kemur án sjálfsvinnu.

    Gerast Áskrifandi að fréttabréfinu okkar