Leiðin er ekki sú sama fyrir alla.
Hún fer eftir þínu ástandi og hvert þú vilt fara.
Leiðin er ekki sú sama fyrir alla.
Hún fer eftir þínu ástandi og hvert þú vilt fara.

Fyrir þá sem vilja byggja upp stöðuga persónulega iðkun og gera jóga að sínum lífsstíl.

Fyrir þá sem glíma við verki, streitu, svefnvanda eða langvinn einkenni og vilja fá leiðsögn og lausnir að sínum bata.

Fyrir þá sem vilja styrkja og bæta öndun, bæta sína orkustjórnun og byggja upp innra jafnvægi.
Sniðið að þínu ástandi og þínum þörfum.
Bein og markviss leið — sem þú vinnur með á þínum hraða undir traustum höndum kennara.
1 Á 1 leiðin er ferli sem byggir á þróun skref fyrir skref.
Við skoðum nákvæmlega hvar þú ert stödd/staddur: – líkamsstöðu, hreyfimynstur og hvernig þú hreyfir líkamann
– öndunarmynstur, hraða og dýpt öndunar
– styrk, hreyfanleika og álagspunkta
– þín markmið og hvaða vegferð þú ert á
Þetta skapar skýran upphafspunkt og stefnu.
Út frá matinu færðu: – æfingar sem eru sniðnar að þínu ástandi
– skýra uppbyggingu á því hvernig þú vinnur með líkama, öndun og huga
– leiðbeiningar um hraða, álag og þróun
– reglulegar uppfærslur eftir því sem þú þróast
Þetta er ekki fast prógram — heldur plan sem þróast með þér.
Þú vinnur sjálfstætt með: – stuttar, markvissar æfingar heima
– daglega eða reglulega ástundun
– uppbyggingu á færni í eigin líkama og öndun
Hér gerist raunveruleg þróun — ekki aðeins í tímum heldur í daglegu lífi.
Á milli tíma færðu: – stöðug samskipti og svör við spurningum – leiðréttingar og aðlögun á æfingum eftir þörfum – möguleika á að uppfæra iðkun jafnvel daglega ef þörf er á – stuðning til að halda stefnu og framvindu
Þannig heldur ferlið áfram — ekki bara í tímum heldur á milli þeirra.
Fyrir þá sem vilja fara beinna að sínu markmiði — út frá eigin ástandi og aðstæðum.
Fyrir þá sem vilja byggja upp líkama, orku og stöðugleika með markvissri iðkun
Fyrir þá sem vilja komast út úr ójafnvægi og finna aftur jafnvægi í líkama og huga
Fyrir þá sem vilja þróa eigin iðkun og vinna sjálfstætt með hana
Fyrir þá sem vilja fá skýra leið í stað þess að prófa sig áfram