Menu

Fáðu Streitupakkann Frítt: Farðu úr Streitu í Slökun á 10 mínútum!

Frelsi frá Streitu á 3 Vikum Netnámskeið!

Lærðu tímalausar jóga- og nútímaaðferðir til streitulosunar.

Lærðu að fara úr streitu í slökun á augabragði og tileinkaðu þér dýpri tækni á aðeins 3 vikum

17. Febrúar – 5. Mars öll kennsla fer fram á Zoom

Slástu í för með Talyu og Gumma, reyndum jógakennurum og jógaþerapistum með yfir 15 ára reynslu af því að kenna áhrifaríkar og einfaldar leiðir gegn streitu.

Streita hefur mjög neikvæð áhrif á líkama og geðheilsu:

  • Hún veldur bólgum, dregur úr blóðflæði og hefur neikvæð áhrif á hjarta- og æðakerfið.

  • Hún truflar svefn, veldur síþreytu og veikir ónæmiskerfið.

  • Hún leiðir oft til kvíða, kulnunar og þunglyndis.

Á þessu 3 vikna námskeiði munt þú læra verkfærin til að snúa þessu við:

  • Virkjaðu slökunarviðbragð líkamans og farðu úr streitu í slökun á örskömmum tíma.

  • Læra öndunartækni sem eykur orku, dregur úr spennu og eflir líkamlegt ónæmi.

  • Styrktu hjarta, æðakerfi með einföldum jógaæfingum sem bæta líkamlega og andlega heilsu.

  • Bættu svefn og vellíðan með æfingum sem hjálpa þér að hvílast á nýjan og dýpri hátt.

Námskeiðið veitir þér verkfæri sem breyta lífi þínu – fyrir rólegri, orkumeiri og sterkari framtíð. Þetta er tækifærið þitt til að endurheimta jafnvægi og vellíðan!

Dagsetning og tími

17.02 kl. 18:00 – 19:15

19.02 kl. 18:00 – 19:15

24.02 kl. 18:00 – 19:15

26.02 kl. 18:00 – 19:15

03.03 kl. 18:00 – 19:15

05.03 kl. 18:00 – 19:15

 


 

Kennsluháttur

Öll kennsla fer fram á ZOOM

Kennsla er á íslensku

 


 

VERÐ: 19.900 kr. 

Takmarkað pláss, tryggðu þitt pláss og skráðu þig á hlekknum að neðan!

Ertu ekki alveg viss? Komdu í fyrsta tímann FRÍTT!

Kennslan var svo fagleg og uppbyggileg að maður lærir eitthvað nýtt í hverjum tíma,  þvílík fræðsla sem maður fær! Þegar ég byrjaði á þessu námskeiði var ég stöðugt undir mikilli streitu sem hafði mjög neikvæð áhrif á mig, bæði andlega og líkamlega. En með því að læra öndunaræfingar sérstaklega míkrópásurnar – sem svínvirka – fór ég smám saman að taka eftir breytingum. Nú finn ég hvað ég er miklu slakari í daglegu lífi, með meiri orku og innri ró sem ég hafði ekki fundið lengi, takk Gummi og Talya algjörir demantar.

Halla

Ég áttaði mig ekki á því hvað streitan var farin að stjórna lífi mínu fyrr en ég byrjaði á þessu námskeiði. Ég var alltaf á fullu, með hjartsláttinn í hámarki, stífa axlir og hausinn á þeytingi. Það sem breytti öllu fyrir mig var hvernig öndunin var kennd – þetta var ekki bara einhver kenning heldur einföld, skýr leið til að róa kerfið mitt á örskotsstundu. Ég fann strax mun: hjartslátturinn hægðist, spennan í líkamanum leystist upp, og hugurinn róaðist. Eftir fjórar vikur sef ég betur, finn minni þreytu yfir daginn og er ekki alltaf með stresskvíðahnútinn. Þetta námskeið hefur bókstaflega gefið mér ný verkfæri.

María Dögg

Frábært Námskeið og Frábærir kennarar

Guðný

Hvernig fer Námskeiðið fram?

Námskeiðið spannar 6 kennslustundir yfir 3 vikur.

Allir tímar eru teknir upp og allir hafa aðgang að eftir tímann.

Öndunar- og slökunaræfingar á lokaðri vefsíðu.

The Advanced Yoga Immersion
  • Jógaæfingar: Þjálfun í jógastöðum sem draga úr spennu, auka blóðrás og skapa seiglu í líkamama.

  • Öndunarvinnu: Lærðu hvernig einfaldar öndunaræfingar sem færa þig í slökunarsvörun á örskömmum tíma, auka orku og jafna hjartslátt.

  • Djúpslökun: Jóga Nidra sem hjálpar þér að ná djúpri og varanlegri slökun.

  • Fræðslufyrirlestra: Hvað er streitusvörun? Streituformúlan og hringrás oföndunar í líkama? Hvernig sköpum við seiglu í líkama með réttri þjálfun? Hvernig bætum við svefn okkar?

  • Lokað netsvæði: Þú færð aðgang að öndunar og slökunaræfingum á netinu í 3 mánuði til að styðja við áframhaldandi streitulosun.

Ertu ekki alveg viss hvort þetta sé fyrir þig?

Ekki málið, komdu í fyrsta tímann FRÍTT. 

Talya og Gummi

Talya hóf jógavegferð sína fyrir meira en 27 árum þegar hún var veik, brotin og föst á milli steins og sleggju. Hún hefur aldrei litið til baka síðan. Hún er lifandi sönnun þess að með réttri þjálfun er fullkomlega hægt að snúa streitunni við. Hún vill ekki aðeins hjálpa þér að takast á við streitu heldur einnig lifa lífi sem einkennist af innri friði og gleði.

Gummi myndi líklega ekki segja að hann sé streitutýpan (hann er jú Íslendingur og með sitt „coolio vibe“), en þegar hann var ungur glímdi hann við mikinn kvíða sem hafði áhrif á öll svið lífs hans. Ástríða hans fyrir jóga og öndunartækni breytti öllu fyrir hann.

Við skiljum bæði hversu hræðileg áhrif streita getur haft, og markmið okkar er að hjálpa þér að losna við þessa þjáningu og byrja að lifa án langvarandi streitu. Við vitum að ef við gátum gert þetta, getur þú það líka!

Gummi og Talya hafa verið á meðal fremstu jógakennara og jógaþerapista á Íslandi í meira en tvo áratugi. Þau hafa kennt í mörgum af hreyfimiðstöðvum Reykjavíkur, í fyrirtækjum og sérstklega með persónulegri þjálfun einstaklinga. Þau eru eigendur Art of Yoga.

Nálgun þeirra á streitu er fyrst og fremst hagnýt og stefnumiðuð, en hún byggir einnig á heildrænni nálgun sem er eins einstaklingsmiðuð og hægt er að aðlaga að þörfum hvers og eins.

Talya and Gummi meistraðu listina að jóga

Fáðu Streitupakkann Frítt: Farðu úr Streitu í Slökun á 10 mínútum!

✔   Fáðu einfalda öndunaræfingu til að fara úr streitu í slökun á 10 mínútum

✔   Fáðu einfalda djúpslökun sem virkjar sefjunarviðbragðið

✔   Uppgötvað helstu streituvalda þína.

Gerast Áskrifandi að fréttabréfinu okkar